Samþykkt að beita Írana refsiaðgerðum vegna kjarnorkumála 23. desember 2006 17:00
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkkti sídegis samhljóða tillögu að ályktun um að beita Írana refsiaðgerðum vegna kjarnorkuáætlana þeirra. Í refsiaðgerðunum felst að bannað verður að sjá Írönum fyrir tækni og efnum tengdum kjarnorkuframleiðslu auk þess sem eignir tiltekinna manna og fyrirtækja verða frystar til að koma í veg fyrir að Íranar geti orðið sér úti um efni til kjarnorkuvinnslu. Þá er þess krafist að Íranar hætti strax að auðga úran, en það má bæði nota til kjarnorkueldsneytis og í kjarnavopn. Nokkur vafi lék á því hvort Rússar myndu styðja tillöguna, meðal annars vegna samstarfs Rússa og Írana í orkumálum, og áttu Valdímír Pútín Rússlandsforseti og George Bush Bandaríkjaforseti samtal í síma fyrr í dag vegna þess. Svo fór að lokum að Rússar studdu tillöguna eftir að henni hafði verið breytt. Eins og kunnugt er hafa Íranar neitað því að hætta auðgun úrans eins og Vesturveldin hafa farið fram á og segja það rétt sinni sem sjálfstæðrar þjóðar að nýta kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. Vesturveldin óttast hins vegar að Íranar geti komið sér upp kjarnavopnum. Fulltrúi Bandaríkjanna í öryggisráðinu varaði Írana við því í dag að ef þeir kæmu sér upp kjarnavopnum myndu öryggi þeirra ekki aukast heldur minnka. Hann sagði jafnframt að ályktunin fæli í sér skýra viðvörun til Írana um það hefði alvarlegar afleiðingar ef þeir ynnu ekki áfram með Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni. Ekki yrði hikað við að leita aftur til öryggisráðsins ef Íranar sýndu ekki samstarfsvilja. Ályktunartillögunni var breytt nokkrum sinnum vegna andmæla frá Rússum og Kínverjum og sagði fulltrúi Rússa í öryggisráðinu að ályktunin fæli ekki í sér leyfi til valdbeitingar gagnvart Írönum.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira