Pútín og Bush ræddu málefni Írans í síma í dag 23. desember 2006 13:58 MYND/Reuters
Vladímír Pútín Rússlandsforseti og George Bush, forseti Bandaríkjanna, ræddust í dag í síma um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gagnvart Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Eins og fram kom í fréttum fyrr í dag greiðir öryggisráðið atkvæði í dag um ályktunartillögu um refsiaðgerðir á hendur Írönum sem hafa neitað að hverfa frá auðgun úrans eins og Vesturveldin hafa farið fram á. Óttast þau að Íranar geti komið sér upp kjarnavopnum. Það var talsmaður stjórnvalda í Kreml sem greindi frá símafundinum en hann sagði ekki nánar frá efnisatriðum samtalsins. Rússar hafa hingað til ekki viljað samþykkja ályktunartillögu gagnvart Írönum og hefur tillögunni ítrekað verið breytt til þess að koma til móts við kröfur Rússa sem eiga í samstarfi við Írana um uppbyggingu kjarnorkuvers í Íran. Tillagan gerir meðal annars ráð fyrir banni við sölu á tækni og efnum tengdum kjarnorkuframleiðslu til Írana ásamt því að frysta eignir 11 manna og 12 félaga frá Íran til þess að koma í veg fyrir þau verði sér úti um hættuleg efni. Það er við síðarnefndu þvingunina sem Rússar gera athugasemdir við.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira