Erlent

Verði seld á bensínstöðvum

Norsku læknasamtökin hafa hvatt til þess að neyðargetnaðarvarnarpillan verði seld á bensínstöðum og í matvörubúðum, en ekki bara í apótekum eins og nú er raunin, svo auðveldara sé að koma í veg fyrir óæskilega þungun hjá yngri konum, hefur Aftonbladet eftir Steinar Madsen yfirlækni hjá samtökunum.

Á þremur árum hefur sala á getnaðarvörninni, sem stundum er kölluð daginn-eftir-pillan, aukist um 30 prósent í Noregi. Á sama tíma hafa tölur yfir fóstureyðingar staðið í stað.

Þó hafa læknarnir áhyggjur af því að konur noti pilluna sem getnaðarvörn, frekar en sem neyðarúrræði þegar aðrar getnaðarvarnir bregðast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×