Erlent

Eitur hugsanlegt banamein

Morðingja leitað. Íbúar Ipswich eru miður sín yfir morðum fimm vændiskvenna.
Morðingja leitað. Íbúar Ipswich eru miður sín yfir morðum fimm vændiskvenna. MYND/AP

Kennsl hafa verið borin á lík fimmtu konunnar sem fundist hefur myrt í þessum mánuði í Suffolk í Bretlandi. Reyndist þar um 29 ára gamla vændiskonu að ræða, Annette Nichols, sem saknað hefur verið síðan 4. desember.

Breska lögreglan telur að um sé að ræða raðmorðinga sem leggist á vændiskonur, en allar störfuðu hinar látnu sem vændiskonur. Lögreglan hefur lýst eftir karlmanni á bláum BMW.

Tvær kvennanna voru kyrktar en ekki hefur tekist að greina banamein hinna þriggja. Verið er að rannsaka hvort þeim hafi verið byrlað eitur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×