Öryggisráðið þarf að bregðast við af hörku 12. apríl 2006 19:45
Íranar hafa færst skrefi nær atómsprengjunni eftir að þeir tilkynntu í gær að þeim hefði tekist að auðga úran. Rússar skoruðu á Írana í morgun að láta af kjarnorkuvinnslu sinni. Kínverjar segja yfirlýsingar Írana ekki samræmast kröfum Sameinuðu þjóðanna. Íranar fögnuðu ákaft og vegsömuðu guð sinn þegar Mahmoud Ahmandinejad, forseti landsins, tilkynnti í gær að írönskum vísindamönnum hefði tekist að auðga úran. Vinnslan er nauðsynleg til að hægt sé að nýta efnið til orkuframleiðslu en líka til að búa megi til kjarnorkusprengjur. Þetta óttast einmitt þorri alþjóðasamfélagsins sem telur Írana hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði að bregðast af hörku við yfirlýsingu Íransforseta en ráðið gaf Írönum frest til 28. apríl til að hætta auðgun úrans. Hún sagði Írana hafa fengið mörg tækifæri til að semja en það hafi þeir ekki gert. Rice telur því að þegar ráðið komi saman verði komið að þeim tímapunkti að til aðgerða verði að grípa. Ekki veðri hægt að láta aðgerðir Íransstjórnar viðgangast. Í morgun skoruðu Rússar á klerkastjórnina í Íran að stöðva vinnslu sína enda væru þeir á rangri leið. Kínverjar, sem hafa neitunarvald í Öryggisráðinu, hafa lýst því yfir að þeir væru andvígir refsiaðgerðum gegn Írönum. Í dag sagði Wang Guangya, fulltrúi Kínverja sem eru nú í forsæti í ráðinu að nýjustu yfirlýsingar Írana væru ekki í samræmi við skilyrði alþjóðasamfélagsins. Hann hvatti alla málsaðila til að sýna stillingu.
Erlent Fréttir Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Fleiri fréttir Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sjá meira