Byggja íbúðarhúsnæði á reit gömlu Hraðfrystistöðvarinnar 16. febrúar 2006 13:15 MYND/Valgarður
Íbúðarhúsnæði fyrir allt á annað hundrað manns mun rísa á reit gamla Hraðfrystistöðvarhússins við Mýrargötu. Framkvæmdir hefjast væntanlega í vor en byrjað var að rífa húsið í morgun. Hraðfrystihúsið við Mýrargötu var byggt árið 1941 en það hefur verið stækkað nokkrum sinnum, síðast árið 1971. Nú stendur hins vegar til að rífa það enda engin starfsemi verið í því fjölda ára. Það er eignarhaldsfélagið Nýja Jórvík sem á lóðina sem húsið stendur á en upphaflega stóð til að endurhanna húsið og byggja upp íbúðir og vinnustofur fyrir listamenn. Frá því hefur nú verið fallið og staðinn verður byggt íbúðarhúsnæði á lóðinni. Eins og greint hefur verið frá í fréttum stendur til að endurskipuleggja Mýrargötu- og slippasvæðið allt með það að markmiði að fjölga íbúum á svæðinu. Magnús Ingi Erlingsson, framkvæmdastjóri Nýju Jórvíkur,segir skipulag á lóðinni unnið í samvinnu við borgaryfirvöld.Verkefni sem þessi séu unnin með bæði atbeina stjórnmálamanna og embættismanna borgarinnar. Félagið hafi átt gott samstarf við þessa hópa. Þetta verkefni hafi tekið langan tíma en ákveðið hafi verið að hverfa frá listamannaíbúðunum og yfir venjulegar íbúðir í fyrrasumar. Fjármögnun verksins er lokið að sögn Magnúsar og hönnunarvinna á lokastigi. Ekki er komið á hreint hvernig íbúðir verður um að ræða en endanlegar hugmyndir verða kynntar á næstu vikum.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fleiri fréttir Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Sjá meira