Erlent

Hersveitir frelsa ástralskan gísl

Írakskar og bandarískar hersveitir hafa frelsað Ástralann Douglas Wood sem hefur verið haldi írakskra uppreisnarmanna í sex vikur. Frá þessu greindi John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, á ástralska þinginu í dag. Ekki er ljóst hvort um var að ræða skipulagða aðgerð til að frelsa hann eða hvort hann hafi fundist í áhlaupi hersveita á aðsetur uppreisnarmanna en Howard sagði að hann nyti nú verndar ástralskra hersins. Wood, sem er verkfræðingur og starfaði á vegum bandarísks fyrirtækis í Írak, var numinn á brott í byrjun maímánaðar en hann er búsettur í Bandaríkjunum og giftur bandarískri konu. Hann er meðal 200 útlendinga sem rænt hefur verið í Írak frá því að ráðist var inn í landið snemma árs 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×