Erlent

Írak ekki öruggara en fyrir innrás

Írak er ekki öruggara en árið 2003 þegar ráðist var inn í landið, segir Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Rumsfeld viðurkenndi í viðtali við sjónvarpsstöðina BBC í gærkvöldi að öryggi óbreyttra borgara væri síst meira nú en fyrir innrásina. Það mætti ekki síst rekja til þess að stjórnvöld í Sýrlandi og Íran gerðu ekki nóg til þess að loka landamærunum að Írak fyrir uppreisnarmönnum. Rumsfeld sagðist þó bjartsýnn á að smátt og smátt þokaðist ástandið í rétta átt og lagði áherslu á að það væri aðeins írakska þjóðin sem gæti bundið enda uppreisnina í landinu en ekki herir Bandaríkjamanna og stuðningsþjóða þeirra. Á aðeins sex vikum síðan ný ríkisstjórn tók við í Írak hafa meira en 900 óbreyttir borgarar fallið í árásum uppreisnarmanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×