Enn hörmungarástand á svæðunum 26. júní 2005 00:01
Hörmungarástand er ennþá á hamfarasvæðunum í Asíu þar sem flóðbylgjan annan dag jóla olli gjöreyðileggingu. Uppbygging gengur afar hægt og fórnarlömbin þarfnast enn mikillar hjálpar, hálfu ári síðar. Náttúruhamfarirnar í Asíu annan dag jóla kostuðu 226 þúsund manns lífið. Hálfu ári síðar eru enn tvær milljónir manna háðar matargjöfum og óteljandi hafast við í flóttamannabúðum. Óvíða er hafið nokkur uppbyggingarstarf af viti og fórnarlömbin eru bæði ósátt og enn í áfalli. Verst er ástandið í Aceh-héraði á Indónesíu þar sem mannskaðinn var einna mestur. Þar er talið að 168 þúsund hafi farist eða sé saknað og daglega finnast líkamsleifar í rústum. Foreldrar leita enn barna sinna og átta þúsund börn eru munaðarlaus. Baldur Steinn Helgason, sem er á vegum Rauða krossins í Banda Aceh, segir skelfingu enn grípa um sig á meðal íbúanna þegar jarðskálftakippir finnist. Og hann segir þá sem misstu ástvini og heimili sín enn í frekar slæmu ástandi. Þess vegna hafi flest hjálparsamtökin sem starfi á svæðinu lagt upp með langtímaáætlun, eða allt upp í tíu ár. Baldur segir stóran hluta borgarinnar eins og eftir kjarnorkustyrjöld; víða séu aðeins eitt og eitt tré á stangli og svo sjáist t.d. flísalögð gólf húsa en húsin sjálf hvergi sjáanleg. Hjálparstofnanir segja nauðsynlegt að reisa 120 þúsund heimili fyrir hálfa milljón heimilislausra en það starf hefur gengið seint. Það var fyrst í maí sem stofnunin sem hefur umsjón með dreifungu gjafafés tók að fjármagna verkefni og talsmenn hjálparsamtaka segja verkefni þar almennt um tveimur mánuðum á eftir áætlun. Á Srí Lanka er ástandið litlu betra. Helen Ólafsdóttir, sem vinnur að friðargæslu þar, segir samkomulag reyndar hafa náðst á föstudag á milli stjórnvalda og Tamil-tígranna um að setja á fót nefndir til að dreifa hjálpargögnum og koma uppbyggingunni af stað í austur- og norðurhluta landsins þar sem tígrarnir ráða yfir stórum landssvæðum. Það sé hins vegar staðreynd að í suðurhlutanum búi fólk enn í tjöldum og sumir hafi enga hjálp fengið. Stjórnvöld á Srí Lanka eru því gagnrýnd fyrir það að ekki nóg sé að gert. Á Srí Lanka missti í það minnsta hálf milljón heimili sín. Þó að ástandið sé víða slæmt og horfurnar ekki góðar gera menn sér þó vonir um að að lokinni uppbyggingunni, sem mun að líkindum taka um áratug, verði ástandið betra en áður: innviðir svæðanna verði betri, hvort sem um er að ræða vegi eða byggingar; þróunarverkefni skili meiri lífsgæðum og jafnvel að hörmungarnar knýi deilendur í Aceh og á Srí Lanka til að slíðra sverðin og semja frið.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Fleiri fréttir Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Sjá meira