Erlent

Emily gerir óskunda

Fellibylurinn Emily gekk á land á eynni Grenada í Karabíska hafinu í gær og olli talsverðu tjóni. Síðustu daga hefur bylurinn heldur sótt í sig veðrið og þegar hann náði ströndum Grenada var vindhraðinn orðinn 44 metrar á sekúndu. Gluggar mölbrotnuðu á aðalsjúkrahúsi höfuðborgarinnar St. George's, uppskera eyðilagðist og sjór flæddi víða inn í hús. Ekki er þó vitað um manntjón af völdum veðursins. Á nálægum eyjum varð jafnframt talsvert tjón, til dæmis á Trinidad þar sem hús fuku hreinlega á haf út.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×