Segir árásina fyrirvaralausa 6. mars 2005 00:01
Ítalska blaðakonan Giuliana Sgrena, sem særðist í skotárás bandarískra hermanna, nýfrelsuð úr höndum mannræningja, segir að hermennirnir hafi skotið fyrirvara- og viðvörunarlaust á bílinn. Árásin hefur aukið andstöðu á Ítalíu við Íraksstríðið og spennu milli Rómar og Washington. Blaðakonan Giuliana Sgrena hafði verið í haldi mannræningja í Írak í um mánuð þegar ítalskur leyniþjónustumaður, Nicola Calipari, fékk hana lausa. Þegar keyrt var með Sgrena í átt að flugvelli skutu bandarískir hermenn á bílinn með þeim afleiðingum að Sgrena særðist en Calipari lést. Lík hins fimmtíu og eins árs gamla Nicola Calipari var flutt til Ítalíu í morgun og var tekið á móti því með viðhöfn. Enn er óljóst hvað nákvæmlgea gerðist þessa föstudagsnótt þegar skotið var á bílinn. Bandaríkjaher segir að bíllinn hafi nálgast vegatálma á ógnarhraða og ekki sinnt viðvörunarmerkjum. Því hafi verið ákveðið að skjóta. Sgrena hefur aðra sögu að segja. Hún hafi ekki vitað fyrr en hún hafi verið í miðri kúlnahríð sem borist hafi frá skriðdreka skammt frá. Ekki hafi verið gefin nein viðvörun um að árás yrði gerð ef bíllinn yrði ekki stöðvaður. Þetta sé algjörlega óskiljanlegt, jafnvel þótt hermennirnir hafi ekki vitað að þau yrðu þarna á ferð og myndu fara þarna í gegn. Þótt Bandaríkjaforseti hafi heitið opinberri rannsókn á því sem gerðist er líklegt að atvikið hafi nokkur pólitísk áhrif á Ítalíu þar sem andstaða við Íraksstríðið og ákvörðun ítalskra stjórnvalda að senda 3000 hermenn til Íraks er mikil.
Erlent Fréttir Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Innlent Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Innlent Fleiri fréttir Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Sjá meira