Útilokar ekki viljaverk 6. mars 2005 00:01
Ítalska blaðakonan Giuliana Sgrena sem látin var laus úr höndum mannræningja í Írak um helgina útilokar ekki að bandarískar hersveitir hafi skotið viljandi á bíl sinn með þeim afleiðingum að ítalskur leyniþjónustumaður beið bana. Ítalina og bandarísku hermennina greinir verulega á um tildrög skothríðarinnar. Gleði ítölsku blaðakonunnar Giuliana Sgrena yfir að hafa verið látin laus úr mánaðarlangri prísund sinni snerist upp í skelfingu á föstudaginn þegar bandarískir hermenn hófu skothríð á bifreið hennar og ítalskra leyniþjónustumanna á leið á flugvöllinn í Bagdad. Nicola Calipari leyniþjónustumaður dó í árásinni þegar hann reyndi að skýla blaðakonunni. Sgrena sneri aftur til Ítalíu á laugardaginn og í gær birtist grein eftir hana í dagblaðinu Il Manifesto um reynslu sína. Þar hafnar hún því alfarið að bílnum hafi verið ekið hratt og ekki sinnt stöðvunarmerkjum eins og bandarísk yfirvöld hafa haldið fram. Þegar skothríðin hófst rifjuðust upp fyrir henni orð mannræningjanna um að fara varlega "því Bandaríkjamenn vilja ekki að þú snúir aftur." Í viðtali við Sky Italia TV í gær útilokaði hún ekki að árásin hefði verið viljandi. "Allir vita að Bandaríkjamenn eru mótfallnir samningaviðræðum við gíslatökumenn og því sé ég ekki af hverju ég ætti að útiloka að ég hafi verið skotmark hermannanna." Ítalskir leyniþjónustumenn höfðu síðustu vikur átt í viðræðum við mannræningjana sem lyktuðu með frelsun Sgrena en ekki er vitað hvort lausnargjald hafi verið greitt. Málið er þegar farið að draga pólitískan dilk á eftir sér. Mikil andstaða hefur verið í Ítalíu við stuðning ríkisstjórnar Berlusconi og þrýstingur mun eflaust vaxa um að 3.000 manna herlið Ítala verði kallað heim. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagðist í samtali við Antonio Martino, ítalskan starfsbróður sinn, harma atvikið mjög og lofaði að það yrði rannsakað til hlítar.
Erlent Fréttir Mest lesið Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Innlent „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Innlent Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Erlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fleiri fréttir Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Sjá meira