Erlent

Blessaði lýðinn á sjúkrahúsi

Jóhannes Páll páfi annar kom stutta stund út í glugga á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm morgun, þar sem hann dvelur nú vegna illvígrar flensu sem herjaði á hann, og blessaði mannfjöldann sem þar var saman kominn. Samkvæmt fréttaskeytum virkað páfi veikburða og er ekki búist við að hann yfirgefi sjúkrahúsið á næstunni. Hugsanlegt er að hann taki ekki þátt í ýmsum athöfnum um páskana, sem eru í lok mánaðarins, en þeir eru hápunktur kirkjuársins í kaþólskri trú.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×