Fjórir Svíar reknir út af hóteli 27. júlí 2005 00:01
Fjórum sænskum ríkisborgurum var kastað út af hóteli í Árósum í Danmörku vegna gruns um hryðjuverk. Mennirnir segjast hafa komið til borgarinnar til að sjá stjörnurnar í knattspyrnuliðinu Barcelona leika við heimamenn. Svíarnir fjórir eiga það sameiginlegt að vera dökkir á hörund og ekki af norrænum uppruna. Hótelstjóranum fannst grunsamlegt að þeir skyldu panta herbergi aðeins hálftíma fyrir komu sína, þeir hafi ekki haft mikinn farangur með, hafi ekki verið búnir að tryggja sér miða á fótboltaleik FC Barcelona og heimamanna í AFG, auk þess sem einn þeirra hafi notað neyðarútgang á hótelinu, sem sé bannað nema í neyð. Tveir lögregluþjónar knúðu dyra á herbergi mannanna og vísaði þeim á dyr, að beiðni hótelstjórans. Ákvörðuin vakti reiði hjá liðsmönnum Barcelona sem dvöldu einnig á hótelinu, og neituðu þeir að taka þátt í skipulagðri uppákomu þann daginn, þar sem þeir áttu að veita áhangendum eiginhandaáritanir. Danir eru með þykkari skráp en áður gagnvart hryðjuverkaógn, skrifar Jyllands Posten í morgun, og hefur eftir talsmanni danskra ferðaskrifstofa. Hann segir eina milljón ferðir verða farnir frá Danmörku til 25 landa sem utanríkisráðuneytið varar við vegna hættu á hryðjuverkaárásum. Eftir árásirnar í Egyptalandi á dögunum lék vafi á því hver ætti að greiða kostnað við heimferð danskra ferðamanna. Sölustjóri ferðaskrifstofunnar Star Tours segir við blaðið MetroXpress í morgun að ferðamálageirinn eigi að koma upp sínum eigin neyðarsjóði, sem geti borgað fyrir heimferðir og aðra neyðarhjálp frá hættusvæðum. Hans hugmynd er að fjármagna sjóðinn með því að leggja því sem nemur fimmtíu íslenskum krónum við miðaverð. Í umræðu um hryðjuverk er oft rætt um Kóraninn, en talsmenn Biblíunnar koma sínum boðskap einnig á framfæri. Þannig sagði fulltrúi frá vottum Jehóva, sem knúði dyra hjá fréttamanni í morgun, að Guð væri sá eini sem gæti bjargað heiminum, manneskjan hefði fengið mýmörg tækifæri til þess – án árangurs.
Erlent Fréttir Mest lesið Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Innlent Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Erlent „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Innlent Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent Fúlsaði við þriggja forseta fundi Erlent „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Innlent Fleiri fréttir Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Sjá meira
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent