Erlent

Samkynhneigðir ganga í Jerúsalem

Gay Pride-gangan verður farin í Jerúsalem þrátt fyrir að borgarstjórinn þar hafi bannað hana. Þetta er niðurstaða ísraelsks dómstóls sem að auki dæmdi borgarstjórann til þess að greiða skipuleggjendum hátíðarinnar andvirði tæpra fimmtíu þúsund íslenskra króna í sekt úr eigin vasa. Hommar og lesbíur hafa deilt við strangtrúaða gyðinga og múslima, sem vilja ekki sjá Gay Pride í þessari helgu borg. Óhætt er að fullyrða að samstaða náist ekki á hverjum degi milli þessara tveggja hópa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×