Þúsundum barna og kvenna nauðgað 7. mars 2005 00:01
Tugþúsundum barna og kvenna hefur verið nauðgað í Austur-Kongó á síðustu árum samkvæmt nýrri skýrslu mannréttindasamtakanna Human Right Watch. Þau segja stjórnarhermenn og uppreisnarmenn ganga skipulega til verks og að fórnarlömbin séu frá fjögurra mánaða gömlum börnum til aldurhniginna gamalmenna. Mannréttindavaktin segir í nýrri skýrslu sinni að þúsundir stjórnarhermanna og uppreisnarmanna komist refsilaust frá ódæðum sínum. Algert stjórnleysi og ringulreið ríki í Austur-Kongó og þar séu 70 þúsund manns á vergangi eða í flóttamannabúðum vegna átaka á milli ættbálka. Í Ituri-héraði hafa 50 þúsund manns fallið á síðustu sex árum og börn niður í átta ára gömul taka þátt í bardögum. Í skýrslu Mannréttindavaktarinnar eru margar átakanlegar frásagnir. Þar greinir 32 ára gömul kona frá því hvernig tólf manna hersveit nauðgaði henni í síðustu viku þegar hún var á gangi á milli tveggja þorpa. Hún er þunguð og komin átta mánuði á leið en segist ekki hafa fundið lífsmark með barninu síðan henni var nauðgað. Fimm börn hennar voru með í för og segir konan að hermennirnir hafi misþyrmt börnunum. Hjálparsamtökin Læknar án landamæra segjast hafa meðhöndlað 2500 fórnarlömb nauðgana á síðustu 18 mánuðum. Þeir telja að tala fórnarlamba geti verið allt að 50 sinnum hærri, eða í kringum 125 þúsund þar sem konur séu hræddar að greina frá slíkum atburðum. Talsmenn þeirra segja ástandið ekkert hafa skánað og að nauðganirnar séu afar skipulagðar, auk þess sem stjórnvöld taki þessar fréttir ekki alvarlega. Þeir segja fórnarlömb nauðgana vera allt frá fjögurra mánaða gömlum ungabörnum til áttræðra kvenna.
Erlent Fréttir Mest lesið Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Aron Can heill á húfi Innlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Innlent Lögreglan leitar tveggja manna Innlent Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Sjá meira