Vildi deyja í haldi mannræningja 23. júní 2005 00:01
Svíinn Ulf Hjertström sem er á sjötugsaldri lenti í klóm mannræningja í Írak og var haldið í tvo mánuði. Hann segir lífsreynsluna hafa verið ömurlega og vildi helst deyja meðan hann var í gíslingu. Ulf Hjertström, sem er 63 ára, starfaði við olíuviðskipti í Bagdad í Írak þegar mannræningjar rændu honum í borginni 25. mars síðastliðinn. Hann var í haldi þeirra þar til 30. maí síðastliðinn. Hjertström telur víst að honum hafi verið rænt af fjárhagslegum ástæðum og hann er viss um að lausnargjald hafi verið greitt fyrir hann. Eftir að mannræningjarnir slepptu honum var hann fluttur til Kúveits þar sem sænskir embættismenn tóku á móti honum og þaðan var hann fluttur til Svíþjóðar. Hjertström segir um atburðina að hann viti ekki hvað hafi gerst. Hann gruni að mannræningjarnir hafi notað einhvers konar gas við ránið. Þegar hann hafi vaknað hafi einn mannræningjanna setið ofan á honum, miðað byssu á milli augnanna á honum og leitað í vösum hans. Hann segir enn fremur að fyrstu tíu dagana hafi ræningjarnir komið inn, látið hann setja hendurnar á vegginn og svo skotið af byssu við eyrað á honum. Þetta hafi þeim fundist fyndið. Hjertström segir að menn deyi hið innra á vissan hátt við slíkt. Eftir tvö til þrjú skipti sé maður andlega dauður og standi á sama og hugsi: „Látum þá skjóta.“
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ Sjá meira