Tengdi Írak og ellefta september 29. júní 2005 00:01
George W. Bush Bandaríkjaforseti reyndi í sjónvarpsávarpi sínu í fyrrinótt að sannfæra þjóð sína um að innrásin í Írak hafi verið nauðsynlegur liður í stríðinu gegn hryðjuverkum. Skiptar skoðanir eru um ágæti ræðunnar á alþjóðavettvangi. Þegar ár er síðan Írakar fengu fullveldi sitt á nýjan leik hefur stuðningur við stríðsreksturinn dvínað umtalsvert í Bandaríkjunum. Nýjustu kannanir sýna að einungis þriðjungur Bandaríkjamanna telur að herir bandamanna séu að vinna stríðið, níu prósentustigum færri en í febrúar. Ávarpið sem Bush flutti úr herstöðinni í Fort Bragg í Norður-Karólínu í fyrrinótt bar þess merki að hann tæki stöðuna í heimalandi sínu alvarlega og því reyndi hann að höfða til þjóðarinnar með því að tengja innrásina í Írak við hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. "Upphaf stríðsins má rekja til 11. september. Óvinum okkar mun takast ætlunarverk sitt ef við gleymum þeirri lexíu sem við lærðum þá og skiljum írösku þjóðina eftir í höndum Abu Musab al-Zarqawi og Mið-Austurlönd í höndum Osama bin Laden." Athygli vakti að Bush var ómyrkur í máli um hversu erfið staðan í Írak er. "Þegar fregnir berast af öllu þessu ofbeldi þá veit ég að Bandaríkjamenn spyrja sig hvort fórnirnar séu þess virði. Þær eru þess virði vegna þess að þær eru nauðsynlegar öryggishagsmunum lands okkar." Hann ítrekaði hins vegar að hvorki væri til sérstök tímaáætlun um hvenær herinn yrði kallaður heim né væri á döfinni að fjölga hermönnum í Írak.. Bush lýsti því ennfremur að til að ná fram sigri þyrfti bæði að styrkja hersveitir Íraka þar til þær gætu sjálfar séð um að tryggja öryggi landsmanna og aðstoða þá við að semja stjórnarskrá og halda kosningar. Helstu bandamenn Bandaríkjanna voru ánægðir með ræðu Bush. Formælandi Ástralíustjórnar sagði að hún undirstrikaði nauðsyn þess að berjast fyrir frelsi og lýðræði. Í yfirlýsingu kínversku ríkisstjórnarinnar var þess hins vegar óskað að Írakar fengju raunverulegt sjálfstæði sem fyrst. Breski þingmaðurinn George Galloway fann ávarpinu flest til foráttu eins og við var að búast. "Allt sem þrjóska Bush hefur skilað er dauði fjölda fólks, bæði Íraka og annarra."
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira