Schröder leitar trausts 29. júní 2005 00:01
Gerhard Schröder boðaði ríkisstjórn sína á fund í dag til að greina ráðherrum frá því hvers vegna hann hygðist leita traustsyfirlýsingar frá þinginu á föstudaginn. Áformin hafa raunar legið fyrir um hríð, en Schröder hefur hins vegar ekki viljað greina frá ástæðu þess að hann leitar traustsyfirlýsingarinnar. Ríkisstjórnin er óstarfhæf og því vill Schröder, kanslari Þýskalands, að hún verði felld með vantrauststillögu og boðað til þingkosninga. Með þessum aðgerðum vonast Schröder til þess að halda völdum. Í dag kynnti hann ástæðuna: ríkisstjórnin er ekki starfhæf eftir að stjórnarflokkarnir töpuðu níu sambandslandskosningum í röð. Stjórnarandstaðan ræður nú í þrettán af sextán sambandslöndum og um leið efri deild þýska þingsins. Hún getur því stöðvað mörg þeirra mála sem Schröder vill koma í gegn. Og því vill hann að þingið lýsi vantrausti, þvingi forsetann Horst Köhler til að taka afstöðu og að líkindum boða til nýrra kosninga, ári á undan áætlun. Köhler gæti hins vegar hafnað vantraustinu og sagt það leið til að komast fram hjá stjórnarskrá landsins sem bannar að kosningum sé flýtt með þessum hætti. Til þess að vantrausti verði lýst verður Schröder að treysta á stuðningsmenn sína, merkilegt nokk. Þeir þurfa að sitja hjá eða lýsa á hann vantrausti því stjórnarandstaðan, sem gagnrýnt hefur kanslarann harðlega, er ekki á því að taka þátt í leikfléttu hans. Gangi fléttan ekki upp er talið næsta víst að Schröder segi af sér, en gangi allt eins og hann vonast til bíður erfið kosningabarátta, því kristilegir demókratar með Angelu Merkel í fararbroddi hafa mikið forskot samkvæmt könnunum. Takist Schröder hins vegar að merja sigur, eins og gerðist í síðustu kosningum, mun hann sussa á efri deildina og krefjast þess að umbótaáform hans verði ekki stöðvuð þar, því að kjósendur hafi lýst stuðningi við sig í kosningum. Nokkuð flókið og andstætt stjórnarskránni að mati sérfræðinga, en atkvæðagreiðslan í þinginu verður samt sem áður á föstudag og eftir það hefur forsetinn Köhler þrjár vikur til að ákveða næsta leik í stöðunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Sjá meira