Erlent

Manchester United tekið af markaði

Knattspyrnuliðið Manchester United var í gær afskráð af hlutabréfamarkaði í London. Liðið hafði verið á markaðnum í fjórtán ár, en nýr eigandi þess, Malcolm Glazer, hafði lýst því yfir að hann myndi taka það af markaðnum. Glazer sagðist þann 14. júní eiga 97,3 prósent allra hlutbréfa í félaginu. Búist er við því að hann gefi frá sér yfirlýsingu á mánudag, en þá rennur út lokafrestur þeirra sem eiga hlut í félaginu til að selja hann til Glazer.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×