Utanríkisráðherra Bandaríkjanna útilokar alfarið Bandaríkin leyfi eða líði pyntingar 5. desember 2005 23:24
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna útilokar alfarið að Bandaríkin leyfi eða líði pyntingar á föngum undir neinum kringumstæðum. Ráðherrann er í fimm daga för um Evrópu og er tilgangurinn að styrkja tengsl álfunnar og Bandaríkjanna. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að upplýsingar sem bandaríska leyniþjónustan CIA hefur aflað, hafi verið nýttar til að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar. Rice, sem er lögð af stað í Evrópuför, var með þessum ummælum að svara gagnrýni sem komið hefur fram í Evrópu á harðneskjulegar aðferðir, sem CIA hefur beitt í yfirheyrslum yfir meintum hryðjuverkamönnum. Rice sagði að Bandaríkin myndu beita öllum löglegum ráðum til að vinna sigur á hryðjuverkamönnum en hún svaraði þó ekki þeirri spurningu hvort Bandaríkin og CIA hefðu rekið leynileg fangelsi í tilteknum ríkjum í Austur-Evrópu. Hún sagist ekki geta svarað spurningum sem gætu grafið undan starfi og aðgerðum leyniþjónustu, lögreglu og hers. Rice sagði að Bandaríkin leyfðu ekki og liðu ekki pyntingar fanga undir neinum kringumstæðum. Þá sagði hún að Bandaríkin hafi virt fullkomlega fullveldi annarra ríkja varðandi þessi mál. Bandaríkin hafi ekki flutt fanga frá einu landi til annars í þeim tilgangi að þeir verðir pyntaðir við yfirheyrslur. Mannréttindasamtök í Bandaríkjunum og víðar hafa sakað bandaríkin um að leyfa það að fangar séu fluttir til ríkja eins og Egyptalands og Sádi-Arabíu þar sem harðneskjulegum yfirheyrsluaðferðum er beitt. Rice sagði að Bandaríkin hefðu hins vegar lengi tekið þátt í því að flytja meinta hryðjuverkamenn milli landa. Heimsókn Rice til Evrópu stendur í fimm daga. Tilgangur ferðarinnar er að bæta samskipti Bandaríkjanna og Evrópu.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira