Erlent

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna útilokar alfarið Bandaríkin leyfi eða líði pyntingar

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna útilokar alfarið að Bandaríkin leyfi eða líði pyntingar á föngum undir neinum kringumstæðum. Ráðherrann er í fimm daga för um Evrópu og er tilgangurinn að styrkja tengsl álfunnar og Bandaríkjanna.

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að upplýsingar sem bandaríska leyniþjónustan CIA hefur aflað, hafi verið nýttar til að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar. Rice, sem er lögð af stað í Evrópuför, var með þessum ummælum að svara gagnrýni sem komið hefur fram í Evrópu á harðneskjulegar aðferðir, sem CIA hefur beitt í yfirheyrslum yfir meintum hryðjuverkamönnum. Rice sagði að Bandaríkin myndu beita öllum löglegum ráðum til að vinna sigur á hryðjuverkamönnum en hún svaraði þó ekki þeirri spurningu hvort Bandaríkin og CIA hefðu rekið leynileg fangelsi í tilteknum ríkjum í Austur-Evrópu. Hún sagist ekki geta svarað spurningum sem gætu grafið undan starfi og aðgerðum leyniþjónustu, lögreglu og hers.

Rice sagði að Bandaríkin leyfðu ekki og liðu ekki pyntingar fanga undir neinum kringumstæðum. Þá sagði hún að Bandaríkin hafi virt fullkomlega fullveldi annarra ríkja varðandi þessi mál. Bandaríkin hafi ekki flutt fanga frá einu landi til annars í þeim tilgangi að þeir verðir pyntaðir við yfirheyrslur. Mannréttindasamtök í Bandaríkjunum og víðar hafa sakað bandaríkin um að leyfa það að fangar séu fluttir til ríkja eins og Egyptalands og Sádi-Arabíu þar sem harðneskjulegum yfirheyrsluaðferðum er beitt. Rice sagði að Bandaríkin hefðu hins vegar lengi tekið þátt í því að flytja meinta hryðjuverkamenn milli landa. Heimsókn Rice til Evrópu stendur í fimm daga. Tilgangur ferðarinnar er að bæta samskipti Bandaríkjanna og Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×