Þingkosningar í Aserbædjan taldar breyta litlu 6. nóvember 2005 20:41
Íbúar Aserbædjans gengu til þingkosninga í dag. Ekki er talið að þær muni breyta miklu í þessu fyrrverandi Sovétlýðveldi þar sem starfsemi stjórnarandstöðuflokka er ekki vel liðin og olíugróðinn virðist seint ætla að skila sér til almennings. Aserbædjan fékk sjálfstæði frá Sovétríkjunum árið 1991. Íbúar þar eru um átta milljónir, flestir múslimar. Aserbædjanar hafa lengi deilt við Armena um héraðið Nagorno Karabak og er af þeim sökum um hálf milljón flóttamanna í landinu. Þar á meðal er þetta fólk sem búið hefur í þessu hálfhrunda hóteli í Baku í rúman áratug og lifir af tólf hundruð krónum á mánuði. Þrátt fyrir olíu- og gaslindir, er efnahagur landsins í hálfgerðri rúst og fátækt mikil. Við það bætist að vísindamenn telja Abseron Yasaqligi nesið þar sem höfuðborgin er, vera eitt mengaðasta svæði jarðar. Loft, jarð og vatnsmengun vegna olíuleka, mikillar notkunar DDT skordýraeiturs og eiturefna sem notuð eru við bómullarframleiðslu, er slík, að annað eins þekkist varla á byggðu bóli. Enn eimir eftir af Sovéttímanum, en kosningabarátta stjórnarandstöðuflokkanna hefur verið takmörkuð af stjórnvöldum, og ríkissjónvarpið sem er meginupplýsingamiðill borgaranna, hefur sent út stöðugan áróður gegn henni. Það er því ekki búist við öðru en að flokkur forsetans Ilhams Alievs, haldi völdum. Yaku Islamova, kosningarstjóri 22. umdæmis í Baku, segir að lagt verði áhersla á að kosningarnar verði lýðræðislegar og hlutlausar og hún telur að þær verði það. Það er þó gott til þess að vita að síðasta skipunin var ekki um að kosningarnar skyldu vera ólýðræðislegar.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira