Erlent

Gjafir streyma til nýfædds prins

Hundruð Dana hafa lagt leið sína til Amalíuborgar í Kaupmannahöfn til að færa hinum nýfædda syni Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprinsessu gjafir. Lög biðröð myndaðist í gær við höllina og tóku starfsmenn í höllinni við pökkunum. Þegar yfir lauk í gær höfðu hátt í 400 pakkar borist og meðal þess sem prinsinn ungi fékk var barnastóll, bækur, leikföng auk fjölmargra bangsa. Þá hafa Danir einnig sent hinni nýbökuðu fjölskyldu blómvendi og heillaóskaskeyti í hundraðavís og fjölmörg börn hafa komið með myndir sem þau hafa teiknað af fjölskyldunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×