Enn slæmt veður á hamfarasvæðum 16. október 2005 00:01
Það rignir enn eldi og brennisteini á hamfarasvæðunum í Kasmír og talið víst að fjöldi fórnarlamba muni hækka vegna vosbúðar og farsótta. Illa gengur að koma hjálp þangað sem hennar er þörf. Landleiðin er nánast ófær vegna flóða og flugleiðin vegna þrumuveðurs. Þeir sem lifðu jarðskjálftann af höfðust því við enn eina nóttina í heimatilbúnum skýlum úr drasli, í kulda og vosbúð. Veðrið fer nú skánandi en flutningur neyðarhjálpar gengur enn hægt, þar sem þrumuveður er í Islamabad og því geta þyrlur ekki flogið þaðan. Talið er víst að fjöldi fórnarlamba skjálftans muni hækka á næstunni og það án þess að tekið sé tillit til aðstæðna eftirlifenda, en óttast er að veðurfarið og menguð vatnsból geti leitt til þess að enn fleiri týni lífi á hamfarasvæðunum. Pakistönsk yfirvöld hyggjast setja upp tjaldborgir fyrir allt að hálfa milljón manna á næstunni þar sem matvælum verður dreift, bráðabirgðaskólum komið á fót og grundvallarþjónusta veitt. Herþyrla við hjálparstörf hrapaði í pakistanska hluta Kasmír í gærdag og fórust sex hermenn sem voru um borð. Þyrlan var að flytja hjálpargögn í Bagh-dalinn, en engin leið er fær þangað utan loftleiðin. Flak þyrlunnar fannst í gær en talsmenn pakistanska hersins segja óljóst á þessari stundu hvort að veður, vélarbilun eða eitthvað annað er ástæða þess að þyrlan hrapaði.
Erlent Fréttir Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Stúlkan er fundin Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sjá meira