Spánska veikin endursköpuð 6. október 2005 00:01
Spánska veikin, faraldur sem kostaðir fimmtíu milljónir lífið árið 1918, hefur verið endursköpuð. Vísindamenn endurlífguðu vírusinn í von um að finna vísbendingar um hvernig berjast mætti við fuglaflensu. Aðrir vísindamenn óttast að þeir hafi í raun búið til gríðaröflugt sýklavopn. Spánska veikin er einhver mannskæðasta inflúensa sem sögur fara af og það er einmitt þess vegna sem vísindamenn við rannsóknarstofu í Atlanta hafa unnið að því í níu ár að vinna vírusinn út úr lungum tveggja hermanna sem létust úr veikinni, og úr líki konu frá Alaska en hún hafði verið grafin í sífrera. Meðal þess sem vísindamennirnir hafa komist að er að spánska veikin var fuglaflensa sem stökkbreyttist og barst í mannfólk. Veiran deilir genastökkbreytingum með fuglaflensunni sem dregið hefur tugi manna til bana í Asíu undanfarin ár. Þetta þykir enn frekar undirstrika hættuna á að fuglaflensan verði að heimsfaraldri. Vísindamennirnir vonast til þess rannsóknirnar leiði til vopna í baráttunni gegn fuglaflensu. Ekki eru allir sannfærðir um að rannsóknirnar séu til góða og óttast afleiðingar þess að lífga við vírusinn sem olli spánsku veikinni. Vísindamenn, sem Reuters vitnar til, segja nánast óhjákvæmilegt að vírusinn berist út af rannsóknarstofum með hugsanlega skelfilegum afleiðingum. Aðrir telja að vísindamennirnir hafi óafvitandi skapað eitthvert skaðvænlegasta sýklavopn sem til er. Fjögur hundruð áttatíu og fjórir Íslendingar eru taldir hafa farist þegar spánska veikin barst hingað til lands 1918. Allt athafnalíf í Reykjavík lamaðist, flestar verslanir lokuðust og dagblöð hættu að koma út vegna veikinda starfsmanna. Samband við útlönd féll niður því allir starfsmenn Landsímahússins utan einn veiktust. Messufall varð og sömuleiðis féll niður sorphirða og hreinsun útisalerna. Erfitt var að anna líkflutningum og koma varð upp bráðabirgða líkhúsum. Brugðið var á það ráð að jarðsetja fólk í fjöldagrafreitum, samkvæmt því sem fram kemur á vísindavef Háskóla Íslands.
Erlent Fréttir Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fleiri fréttir Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Sjá meira