Sökuð um aðskilnaðarstefnu 18. september 2005 00:01
Forseti Írans segir þjóð sína hafa fullan rétt til að framleiða kjarnorku. Hann sakar vesturveldin um kjarnorkuaðskilnaðarstefnu, þar sem sumum löndum sé heimilt að auðga úran og öðrum ekki. Þegar forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í gær, varði hann rétt þjóðar sinnar til að framleiða kjarnorku til orkunotkunar. Á sama tíma dvínuðu vonir manna um sátt í kjarnorkudeilu Írana og vesturveldanna, og er hugsanlegt að málinu verði skotið til öryggisráðsins. Ahmadinejad sagði í ávarpi sínu að orkuframleiðsla Írans byggðist á friðsamlegri kjarnorkutækni og til að byggja upp traust væri Íran reiðubúið að ganga til samstarfs við einkaaðila og opinbera aðila í öðrum löndum um áætlanir á svið úranauðgunar í Íran. Ahamadinejad sagði að þetta frumkvæði Írana gengi lengra en ákvæði samnings um að hindra útbreiðslu kjarnavopna kvæðu á um og miðaðist að því að byggja upp frekara traust. Íranar hefðu óskoraðan rétt til aðgangs að kjarnorku. Áframhaldandi gagnkvæmt samstarf við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina á tæknilegu og lagalegu sviði yrði megininntak kjarnorkustefnu Írana. Bandaríkjastjórn sakar Írana um að reyna að nota kjarnorkuáætlun sína til að koma sér upp kjarnavopnum en Íranar vísa því á bug. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði Írana verða að snúa aftur að samningaborðinu. Landið hefði átt í samningaviðræðum við Frakkland, Bretland og Þýskaland þegar það hefði ákveðið að hætta þeim einhliða og taka upp kjarnorkuáætlun sína á ný. Hún sagði að vandinn væri sá að hegðun Írana á umliðnum árum, hvað varðaði skyldur þeirra gagnvart Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni, hefði orðið til að minnka traust fólks um allan heim á því að Íranar vildu rækja þessar skyldur sínar. Þess vegna hefðu Bretar, Frakkar og Þjóðverjar rætt við Írana um leiðir til að verða við orkuþörf þeirra.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira