Byrjað að safna saman líkum 4. september 2005 00:01
Brottflutningi íbúa frá New Orleans er að mestu lokið. Bæði íþróttahöllin SuperDome og ráðstefnumiðstöð borgarinnar hafa verið tæmdar af fólki og byrjað er að safna saman líkum af götunum. Sex dögum eftir að fellibylurinn Katrín fór yfir suðurströnd Bandaríkjanna er loks búið að bjarga flestum þeim sem urðu innlyksa í New Orleans. Hundruð rútubíla og þyrlna fluttu þúsundir íbúa til alþjóða flugvallarins í gær þaðan sem herflugvélar flugu með þá ýmist til Texas eða norðar í Louisana-ríki. Götur borgarinnar eru nú að mestu auðar, þjóðvarðliðar ganga um þar sem þurrt er, en þeir hafa nú nokkurn veginn náð stjórn á borginni eftir margra daga óöld og stjórnleysi. Björgunarmenn hafa heyrt hrikalegar sögur af því sem gekk á á meðan tugþúsundir íbúa biðu dögum saman eftir að aðstoð bærist. Vefur bresku fréttastofunnar BBC hefur eftir einum flóttamannanna sem hafðist við í ráðstefnumiðstöðinni að konum hafi til dæmis ekki verið óhætt að fara á baðherbergið einar síns liðs. Þar hafi mörgum verið nauðgað og nokkrar þeirra myrtar. Í einu tilviki hafi uppgötvast hver var að verki og sá maður hafi verið barinn til dauða af æstum lýðnum. Lík liggja eins og hráviði bæði inni í SuperDome og ráðstefnumiðstöðinni og allt í kring. Annar staðar fljóta þau um í flóðavatninu sem mun taka margar vikur að dæla burt. Nú er loks byrjað að safna saman líkum fórnarlambanna en engin leið er að vita hversu margir fórust. Óttast er að fjöldinn hlaupi á þúsundum. Flóðvatnið sem umlykur borgina er líka hámengað af öllum mögulegum úrgangi og mikil hætta á að blóðkreppusótt og aðrir sjúkdómar brjótist út ef fólk heldur áfram til í nánd við vatnið. Þótt fólk sé fegið að komast loks á brott, ríkir einnig mikil reiði í garð stjórnvalda fyrir að hafa brugðist seint og illa við. Condoleezza Rice utanríkisráðherra var harðlega gagnrýnd fyrir að hafa farið á söngleik í New York á miðvikudaginn eins og ekkert hefði í skorist, daginn eftir að flóðvarnargarðarnir í kringum New Orleans brustu og borgin fór endanlega á flot. Rice ætlar að heimsækja flóðasvæðin á næstunni sem og Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra og Michael Chertoff innanríkisráðherra. Bush Bandaríkjaforseti ætlar í sína aðra heimsókn á morgun. Yfirvöld á flóðasvæðunum fagna auðvitað athyglinni en segja jafnframt að betra hefði verið að fá hana nokkrum dögum fyrr. Alls verða 54.000 hermenn og þjóðvarðliðar komnir til starfa á flóðasvæðunum á næstu dögum. New Orleans hefur fengið mesta athygli þeirra borga og bæja sem lentu í fellibylnum Katrínu en ástandið er afar slæmt á mjög stóru svæði. Í Mississippi bíður fólk einnig í hundraðatali eftir að fá aðstoð við að komast í burtu frá gjörónýtum húsum og menguðu flóðavatni. Meira en milljón manna er heimilislaus eftir yfirreið fellibylsins og alls óvíst hvenær fólk getur snúið aftur. Þótt alríkisstjórnin hafi lofað miklu fé til hreinsunar- og uppbyggingarstarfs mun það taka marga mánuði ef ekki ár. Fjölmörg erlend ríki hafa heitið fjárhagsaðstoð, jafnvel Afganistan, sem er eitt fátækasta ríki heims, ætlar að leggja fram eitt hundrað þúsund dali til styrktar fórnarlömbunum,
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira