Hvalhræ á reki í Faxaflóa 8. ágúst 2005 00:01 "
Það er alveg klárt að þetta eru fituleifar og innyfli úr veiddri hrefnu," segir Viðar Helgason, leiðsögumaður á hvalaskoðunarbátnum Hafsúlunni, en í síðasta mánuði hafa hvalaskoðunarmenn rekist á tvö hvalahræ um það bil tveimur mílum utan við innsiglinguna í Reykjavík. Guðmundur Gestsson, framkvæmdastjóri Hvalstöðvarinnar, segir að hann geti ekki fært sönnur á það að hræin komi af veiddri hrefnu en telur það þó mjög líklegt. Gísli Víkingsson, sérfræðingur á Hafrannsóknarstofnun, segir að hrefnuveiðimenn sökkvi beinum og innyflum hrefnanna þegar búið er að vinna þær. Hann segir það gert á miklu dýpi og utan togslóða. "Það er búið svo um að innefli eiga ekki að geta losnað og flotið upp en það er aldrei hægt að útiloka alveg að það komi fyrir," segir Gísli. Hann segir þó að hrefnuveiðimenn hafi ekki veitt né sleppt hrefnum nálægt þeim slóðum þar sem hræin fundust og því telur hann mjög ólíklegt að hræin séu frá þeim komin. Hann bendir á að hvalspik geti flotið upp af sjálfdauðum hval og svo geti háhyrningar drepið og étið hrefnu og þar með skilið hræ eftir sig. Hann minnist þess að spik og innyfli úr hvölum hafi fundist á floti á meðan engar hvalveiðar voru stundaðar. Viðar segir þau vinnubrögð hrefnuveiðimanna að henda hrefnuhræjum í sjóinn vera afar slök. "Þetta er eins og að hreindýraskytta skilji hræið af hreindýrinu eftir í skóginum þegar hann hefur hreinsað af því kjötið sem hann vill hafa með sér heim," segir hann. Hann segir að í fyrra hafi allt hræ verið tekið á land og undrast hann þessa nýbreyttni. Gísli segir hins vegar að aðeins sjö af tuttugu og fimm skepnum hafi verið unnar í landi og var þá hræjunum fargað í Sorpu. Hann segir það mun eðlilegri frágangsmáta að skila hræjunum aftur í sjóinn, þó á þann veg að þær angri engan, heldur en að koma með þau í land. Hann segir þennan frágangsmáta tíðkast hjá til dæmis Norðmönnum og Japönum.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira