Innlent

Ánægð með Árna

"Mér þykir gríðarlega ánægjulegt að hann skuli ganga svona langt," segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir formaður Samtakanna '78 um ræðu Árna Magnússonar félagsmálaráðherra á Hinsegin dögum í gær. "Síðan skýrslan um réttarstöðu samkynhneigðra kom út í fyrra hefur okkur fundist þetta ver sá póll sem tekinn er í hæðina af stjórnmálamönnum almennt. Við vorum þó ekki viss um viðhorf stjórnarflokkanna og því er ræða Árna ánægjuleg," segir Hrafnhildur. Hún segist bíða spennt eftir aðgerðum og segir að þegar þessum áfanga verði náð þá verði flest stóru vígin unnin í réttindabaráttunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×