Geimgangan gekk vel 30. júlí 2005 00:01
Eftirfarandi kringumstæður þekkja allir: Farartækið varð fyrir hnjaski og til að komast á leiðarenda þarfnast það viðgerðar. Oftast má bjarga sér, en þegar farartækið er geimskutla og vandræðin eru á sporbraut, 350 kílómetra frá yfirborði jarðar, er vandinn ærinn. Soichi Noguchi og Stephen Robinson svifu út úr geimskutlunni Discovery þar sem hún var í 358 kílómetra hæð yfir Suðaustur-Asíu rétt fyrir hádegi í dag. Við tók sex og hálfrar klukkustundar geimganga þar sem æfð voru handbrögðin sem hugsanlega verða notuð til að gera við geimskutluna á sporbraut um jörðu en hún laskaðist í flugtaki. Alls fuku fjórar hitaeinangrunarflísar af henni áður en hún kom að Alþjóðlegu geimstöðinni og allar eru þær stærri en öryggisstaðlar Geimferðastofnunarinnar leyfa. Talsmenn Geimferðarstofnunar Bandaríkjanna, NASA, segja engar vísbendingar um að hætta stafi að skutlunni þrátt fyrir skemmdirnar, en halda því opnu að reynt verði að gera við hana á sporbraut. Engu að síður eru skemmdirnar áfall fyrir NASA þar sem miklum tíma og nærri því sjötíu milljörðum hefur verið eytt í viðgerðir og lagfæringar sem komu, að því er virðist, ekki að gagni. Skutluflotinn er í flugbanni þar til tekst að leysa vandann með fullnægjandi hætti. Flugstjórinn Eileen Collins hefur lýst óánægju sinni með þetta en það kemur hins vegar geimförunum um borð í Discovery ekki að gagni. Þeir eiga eftir tvær geimgöngur og um viku í geimnum áður en reynir á hvort að þeir þurfi að reyna að gera við geimskutluna og hvort að það takist að koma henni og áhöfninni heilum heim.
Erlent Fréttir Mest lesið Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Erlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Slösuð göngukona flutt með þyrlunni Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Innlent „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Sjá meira