Sagði íslam ekki siðmenningu 27. júlí 2005 00:01
Ummæli ráðherra í ítölsku ríkisstjórninni, þess efnis að íslam væri ekki siðmenning, hefur valdið mikilli hneykslan á Ítalíu. Hafa talsmenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka fordæmt ummælin og lagt áherslu á að samræður við hófsama múslima séu lykillinn að baráttunni gegn hryðjuverkum. Roberto Calderoli, ráðherra kerfisumbóta, lét þau orð falla á þriðjudag að nýjustu hryðjuverkaárásirnar væru afleiðing "áreksturs milli siðmenningar og ekki-siðmenningar". "Að skilgreina íslam sem siðmenningu væri ofrausn," sagði Calderoli, en hann kemur úr Norðurbandalaginu, hægriflokki á Norður-Ítalíu sem hefur beitt sér mjög fyrir takmörkunum á innflytjendastraumi og róttækum ráðstöfunum gegn hryðjuverkaógninni. En Calderoli á sér augsýnilega ófá skoðanasystkin. Í síðustu viku kom út þriðja bók ítalska rithöfundarins Oriana Fallaci, þar sem hún skrifar um ógnina sem hún telur Evrópu og vestrænni menningu stafa af múslimum. Fyrri bækur hennar um efnið hlutu metsölu.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán