Morðingi Gogh í lífstíðarfangelsi 26. júlí 2005 00:01
Lífstíðardómur var í morgun kveðinn upp yfir Mohammed Bouyeri sem játaði að hafa drepið hollenska kvikmyndagerðarmanninn Theo van Gogh. Hann kvaðst myndu gera slíkt hið sama á ný, hefði hann til þess tækifæri. Bouyeri réðst að van Gogh þar sem hann hjólaði til vinnu í nóvember 2004. Hann skaut og stakk van Gogh, skar hann á háls og kom fyrir fimm blaðsíðna hótunarbréfi á líkinu. Bouyeri gekkst við morðinu við réttarhöldin og sagði trú sína ástæðuna en hann er múslími af marokkósku bergi brotinn en fæddur og uppalinn í Hollandi. Van Gogh hafði meðal annars gert mynd þar sem því var haldið fram að íslam leyfði ofbeldi gegn konum. Hótunarbréfinu var beint gegn handritshöfundinum, Ayaan Hirsi Ali, sem er þingmaður og hefur verið í felum æ síðan. Í kjölfar morðsins voru gerðar árásir á moskur í Hollandi, á trúarskóla og kirkjur. Óttast var að þolinmæði og umburðarlyndi væru á undanhaldi í landi sem lengi vel var þekkt fyrir þau gildi. Umræða stendur enn í Hollandi um hvernig eigi að taka á harðlínu-íslamistum. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að Bouyeri hefði myrt van Gogh á skelfilegan hátt og hefði ekki sýnt neina iðrun. Víst er að Bouyeri er því sammála: hann kvaðst við réttarhaldið raunar myndu gera slíkt hið sama fengi hann til þess tækifæri. Van Gogh hefði móðgað íslam. Af þeim sökum taldi dómarinn þá leið eina færa að vernda samfélagið ótímabundið fyrir Bouyeri og dæmdi hann í ævilangt fangelsi.
Erlent Fréttir Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira