Yfir 70 manns í haldi lögreglu 24. júlí 2005 00:01
Rúmlega 70 hafa verið teknir til yfirheyrslu í Sharm el-Sheik og víðar á Sínaí-skaga Egyptalandi vegna sprengjuárásanna sem urðu 88 manns að bana á föstudagskvöld. Lögreglan segir engan vera sakaðan um að hafa komið að sprengingunum enn sem komið er. Þetta er mannskæðasta hryðjuverk sem framið hefur verið í Egyptalandi. Auk þeirra sem létust særðust að minnsta kosti 134. Yfirvöld telja að fjórir menn hafi ekið tveimur pallbílum hlöðnum sprengiefni til að sprengja hótel við Naama flóa og fjölmennt kaffihús í grenndinni. Talið er að þeir hafi skilið þriðju sprengjuna með tímastilli eftir í skjalatösku á bílastæði sem fólk þusti um eftir að hinar sprengjurnar tvær sprungu. Lítur út fyrir að sprengingin við hótelið hafi verið sjálfsmorðsárás en lögreglan leitar þriggja ódæðismanna. Tveir hópar hafa lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkunum en í gær var ekki búið að ganga úr skugga um sannleiksgildi þeirra yfirlýsinga. Annar hópurinn, Abdullah Azzam hersveitin, sem er deild Al-kaída í Egyptalandi og Sýrlandi, lýsti einnig sprengjuárásum í Taba í október síðastliðnum og sprengju- og skotárás í Kaíró apríl. Hinn hópurinn kallar sig Heilaga stríðsmenn Egyptalands en lítið sem ekkert er vitað um hann. Þá útiloka yfirvöld ekki að útlendingar beri ábyrgð á ódæðinu. Mannréttindasamtök í Egyptalandi segja að yfirvöld megi ekki beita sömu aðferðum nú og þau gerðu eftir hryðjuverkin í Taba en þá voru rúmlega þrjú þúsund manns handteknir af handahófi. Árásarnir hafa þegar valdið ferðaþjónustu Egyptalands miklum búsifjum og ferðamenn flýja úr landi í stórum hópum. Verkamenn vinna hörðum höndum við að hreinsa upp rústir á vettvangi árásanna og margir lögreglumenn eru á svæðinu við eftirlit. Heilbrigðisyfirvöld sögðu í gær að ekki hefðu verið borin kennsl á 34 þeirra sem fórust. Flestir sem dóu voru Egyptar, en vitað er að tveir Bretar, tveir Þjóðverjar, Ítali og Tékki létu einnig lífið.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira