Erlent

Útbreiðsla fuglaflensunnar

Tuttugu manns hafa látið lífið eftir að hafa smitast af fuglaflensu í Víetnam frá því í desember á síðasta ári. Alls hafa fjörutíu látist úr flensunni í landinu. Til að reyna að uppræta flensuna ætla stjórnvöld nú að bólusetja meira en fjögur hundruð milljónir fugla, meðal annars endur. Í gær var greint frá því að ýmislegt benti til þess að sá stofn flensunnar sem reynst hefur mönnum banvænn, H5N1, fyndist nú í öndum sem sýndu sjálfar engin einkenni flensunnar. Óttast er að þetta muni enn auka útbreiðslu veikinnar. Þetta gæti leitt til þess að veikin breiddist út án þess að þess yrði vart í fyrstu og að endur verði einskonar Trójuhestur sem beri veikina með sér um víðan völl. Sérfræðingar alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar segja lífsnauðsynlegt að uppræta H5N1 stofninn og að því lengur sem það dragist aukist líkurnar á að hann stökkbreytist. Óttast er að sú breyting geti leitt til þess að veikin smitist manna á milli og að í kjölfarið breiddist hún út sem faraldur um allan heim. Flensan gæti þá kostað milljónir manna lífið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×