Erlent

Olíuborpallur mikið skemmdur

Olíuborpallur, í eigu BP, er mikið skemmdur eftir að fellibylurinn Dennis reið þar yfir á mánudag. Pallurinn er um 240 kílómetra suðvestur af New Orleans í Bandaríkjunum en búið var að koma öllum í land áður en atvikið átti sér stað. Forráðamenn fyrirtækisins segja olíuframleiðslu enn geta haldið áfram, þrátt fyrir miklar skemmdir og að engin mengun hafi orðið í kjölfar atvikisins. Viðgerðir verða gerðar á næstunni á öruggan hátt, segir í tilkynningu frá félaginu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×