Íbúum létt þrátt fyrir mikið tjón 11. júlí 2005 00:01
Íbúar Flórída og Alabama sluppu mun betur frá fellibylnum Dennis en óttast var en skemmdirnar eru talsverðar. Þök þeyttust af húsum, bátar slitnuðu upp og ráku á haf út, götur einstakra sjávarþorpa eru enn á floti og hálf milljón heimila og fyrirtækja stríðir við rafmagnsleysi. Talið er að rafmagnið verði ekki komið á hjá sumum fyrr en eftir þrjár vikur, jafnvel síðar. Heimamenn hófu hreinsunarstarf í gær þegar fellibylurinn var farinn norður fyrir Flórída og Alabama, hafði þá dregið mjög úr krafti óveðursins sem er ekki lengur flokkað sem fellibylur. Fellibylurinn var gríðarlega öflugur þegar hann gekk yfir Karíbahaf og nálgaðist strendur Bandaríkjanna en gekk niður skömmu áður en hann gekk á land. Einn lést þegar fellibylurinn gekk yfir Bandaríkin. Lík karlmanns fannst eftir að veðrið var gengið yfir, hann er talinn hafa stigið á rafmagnslínu sem féll til jarðar í veðurhamnum. Í það minnsta 20 manns létust þegar Dennis reið yfir eyjar Karíbahafs, tíu á Kúbu og í það minnsta jafn margir á Haítí. Munich Re, stærsta tryggingafélag heims, metur skemmdirnar sem Dennis olli á andvirði 200 til 330 milljarða króna, til samanburðar eru efri mörkin talsvart hærri en fjárlög íslenska ríkisins ár hvert. Fellibylurinn Dennis var mun minni en Fellibylurinn Ivan sem kostaði tugi manna lífið í fyrra. Dennis náði rúma 60 kílómetra út frá miðju sinni en Ivan um 170 kílómetra. Skemmdirnar urðu því á minna svæði en ella. Þeir sem urðu á vegi fellibylsins eiga þó um sárt að binda og sagði yfirmaður hamfaraskrifstofu alríkisstjórnarinnar nauðsynlegt að koma fólki til hjálpar. Fólk á vegum stofnunarinnar hóf í gær að dreifa hjálpargögnum til fólks á hamfarasvæðunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira