Erlent

Bush varar Blair við væntingum

Tony Blair ætti ekki að búast við neinum greiðum á fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims. Þetta segir George Bush og segir stuðning Blairs við Íraksstríðið alls ekki þýða að hann fái eitthvað í staðinn. Bush lét þessi orð falla í viðtali við bresku sjónvarpsstöðina ITV, en hann kemur í dag til Skotlands til viðræðna við aðra leiðtoga átta stærstu iðnríkja heims. Þar á meðal annars að ræða skuldir þriðja heimsins og hlýnun jarðar. Hvorugt efnið er Bush sérstaklega að skapi en breskir fjölmiðlar hafa undanfarið greint frá því að Tony Blair hyggist beita Bush þrýstingi og telji sig eiga eitt og annað inni hjá Bandaríkjaforseta. Ekki að mati Bush. Hann sagði í viðtalinu að samband þeirra Blairs gengi ekki út á að svara í sömu mynt. Sjálfur færi hann á fundinn í Gleneagles í Skotlandi ekki til að gera lítið úr Tony Blair, heldur til að verja hagsmuni Bandaríkjanna. Hann útilokaði jafnframt að undirrita samkomulag iðnríkjanna um umhverfismál og baráttu gegn útblæstri gróðurhúsalofttegunda og sagði það líkjast Kyoto-samkomulaginu. Bush sagði því samkomulagi upp fyrir hönd Bandaríkjanna árið 2001 og sagði að það hefði að öðrum kosti lagt efnahags landsins í rúst. Hann viðurkenndi hins vegar að hlýnun jarðar væri alvarlegt langtímavandamál sem taka yrði á og jafnframt að það væru ekki síst verk mannskepnunnar sem yllu gróðurhúsaáhrifum. Bush kvað nær að þróa nýja tækni til að takast á við vandann, og sagði Bandaríkin vinna að einangrun koltvísýrings í neðanjarðarbrunnum, auk þess að þróa vetnisknúin farartæki og fleira í þeim dúr. Annað umræðuefni á fundinum í Skotlandi eru skuldir þriðja heimsins og ekki síst hvort að hætta eigi niðurgreiðslum á landbúnaðarafurðum. Bush kvaðst reiðubúinn til þess, gerði Evrópusambandið slíkt hið sama, en það er talið mjög ólíklegt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×