Neyðarástand á Ítalíu 29. júní 2005 00:01 "
Því er spáð að hitinn geti farið upp í 40 til 45 stig í heitustu borgunum. Það er neyðarástand í landinu, tíu manns hafa þegar látist, en á sunnudaginn lést sextugur Þjóðverji á ströndinni hér í bænum," segir Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir fararstjóri fyrir Úrval- Útsýn á Lido di Jesolo rétt hjá Feneyjum. Á Ítalíu er heitast í Mílanó, Flórens, Róm, Bologna og Brescia þar sem hitastig hefur verið um 35 gráður. Ástandið er verst í stórborgum norður Ítalíu vegna mengunar og gamalla húsa þar sem ekki er loftkæling en Jóhanna Guðrún segir að hitinn angri ferðamenn við ströndina ekki eins mikið. "Við erum að horfast í augu við hitabylgju sem er jafnstór ef ekki stærri en sú sem skall á 2003 og um það bil ein milljón manna eru í hættu," sagði Francesco Storace heilbrigðismálaráðherra Ítalíu við Reuters fréttastofuna. Árið 2003 létust 20.000 manns vegna hitans, flest eldra fólk. Yfirvöld á Ítalíu hafa beðið lækna um að fylgjast vel með öldruðum sjúklingum sínum sem eru í mestri hættu. Á mánudag var nýtt met slegið í rafmagnsnotkun á Ítalíu vegna mikillar notkunar loftkælikerfa. Á norður Ítalíu valda miklir þurrkar vandræðum og óttast menn uppskerubrest. Sunnarlega á Spáni hefur hitastig sums staðar farið upp í 40 gráður og verstu þurrkar í 60 ár hrjá landið. "Hér er vel heitt en það er ekki hægt að tala um hitabylgju enn þá," segir Kristinn R. Ólafsson sem búsettur er í Madríd en hitinn þar er í 30 gráðum. "Vandinn er mikill á suðaustur Spáni, Alicante og þar um kring, þar sjá menn fram á vandræði vegna þurrka," segir hann. Heilbrigðisráðherra Frakklands, Xavier Bertrand, hefur komið af stað neyðaráætlun vegna hugsanlegrar hitabylgju í Frakklandi sem felst í því að fylgjast með um 100.000 manns sem taldir eru viðkvæmir fyrir hita.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira