Sjóorustan við Trafalgar 28. júní 2005 00:01
Bretar halda upp á það í dag að í ár eru tvö hundruð ár liðin frá sjóorrustunni við Trafalgar, sem markaði upphafið að endalokum hins mikla veldis Napóleons Bónaparte. Margir eru þó óánægðir með framkvæmd hátíðahaldanna. Þeir sem hafa farið til Lundúna hafa sjálfsagt flestir komið við á Trafalgartorgi þar sem Nelson flotaforingi gnæfir yfir lýðinn á súlu. Nelson leiddi breska flotann í orrustunni við sameinaðan flota Frakka og Spánverja, 21. október 1805, undan Trafalgarhöfða á Spánarströnd. Engu skipti þótt hann hefði þegar misst handlegg og auga í fyrri bardögum, hann stýrði mönnum sínum til sigurs. Frönsk leyniskytta hæfði hann þó í bardaganum og lét hann lífið þar, 47 ára gamall. Barnabarnabarnabarnabarn Nelsons, Anna Tribe sem er sjötíu og fimm ára gömul, er mjög hneyksluð á því hvernig á að halda upp á daginn. Það á að setja á svið glæsilega nítjándu aldar sjóorrustu, en í stað þess að þjóðirnar eigist við, verða það rauða og bláa liðið. Þetta finnst henni of mikil varkárni og viðkvæmni og telur víst að Spánverjar og Frakkar séu alveg nógu fullorðnir til að horfast í augu við það að Bretar unnu orrustuna á sínum tíma. Það hafi ekkert breyst. Alex Naylor, sá sem leikur Nelson í orrustunni tekur undir með Önnu og segir Nelson hafa talið stjórnmálamenn huglausar lyddur og hann hallist að því að gamli maðurinn hafi haft rétt fyrir sér. Skipuleggjendur hátíðahaldanna vildu forðast allan þjóðrembing og sigurgleði, einmitt nú þegar Bretar og Frakkar deila hart um framtíð Evrópusambandsins. 160 skip úr 35 flotum taka þátt í hátíðahöldunum, svo hvort sem það eru rauða og bláa liðið eða Bretar gegn Frökkum og Spánverjum, þá verður orrustan sjálfsagt mikið sjónarspil.
Erlent Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Sjá meira