Jóhannes Páll strax í dýrlingatölu 27. júní 2005 00:01
Allt bendir nú til þess að Jóhannes Páll páfi annar verði sá maður sem skjótast verður tekinn í tölu dýrlinga eftir andlátið. Benedikt páfi sextándi hefur fellt niður fimm ára regluna svokölluðu og Vatíkanið er þegar farið að kanna möguleg kraftaverk. Jóhannes Páll páfi annar lést í apríl eftir langvinn veikindi. Strax við útför hans sáust borðar á lofti með áletruninni „Santo subito!“ eða Dýrlingur strax! Yfirleitt líða að minnsta kosti fimm ár frá láti manns þar til Vatíkanið fer svo mikið sem að velta fyrir sér hvort viðkomandi sé þess verður að komast í dýrlingatölu. Pólski biskupinn Slawomir Oder segir að kardínálarnir séu á sama máli og almenningur að hefja eigi strax ferlið til að gera Jóhannes Pál að dýrlingi. Það hafi þátt í því að Benedikt páfi felldi niður fimm ára biðtímann. Nokkrum embættismönnum Vatíkansins hefur verið falið að safna gögnum um Jóhannes Pál annan og munu þeir sverja þess eið á morgun að halda öllu leyndu sem þeir komast að auk þess sem þeir heita því að taka ekki við neinum gjöfum sem gætu túlkast sem mútur til að hafa áhrif á niðurstöðu þeirra. Vatíkanið þarf að staðfesta að kraftaverk hafi átt sér stað eftir lát páfa og það þarf annað kraftaverk eftir að Benedikt sextándi hefur lýst því yfir að hann sé kominn í hóp blessaðra á himnum til þess að Jóhannes Páll annar verði opinberlega dýrlingur. Í gegnum tíðina hafa oft liðið aldir áður en menn voru útnefndir dýrlingar en svo virðist sem allt eigi að gera til að flýta fyrir Jóhannesi Páli. Svipað var reyndar uppi á teningnum eftir lát Móður Teresu en hún var tekin í dýrlingatölu sex árum síðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Sjá meira