Erlent

Níutíu menntaskólanemar í haldi

Ekkert hefur heyrst frá tæplega hundrað menntaskólanemum í Nepal síðan þeim var rænt af byltingarsinnum fyrir fimm dögum. Rán af þessu tagi eru algeng í Nepal, þar sem uppreisnarmenn úr hópi kommúnista handsama nemendur í skólum sínum og fræða þá um boðskap sinn í tvo til þrjá daga. Stjórnvöld í Nepal hafa sérstakar áhyggjur af þessu ráni vegna þess að ekkert hefur heyrst frá unglingunum í fimm daga. Þrátt fyrir þetta verður engin lögregla send á staðinn, þar sem skólinn er á svokölluðu hættusvæði og hvorki lögreglustöðvar né herstöðvar þar í grennd.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×