Áfrýjar dómi í hópnauðgunarmáli 27. júní 2005 00:01
Mukhtaran Mai, pakistanska konan sem var nauðgað af hópi karlmanna árið 2002 eftir skipun öldungaráðs í þorpinu hennar, áfrýjaði í dag máli sínu til hæstaréttar. Hún segist vonast til að hæstiréttur staðfesti upphaflegan dauðadóm yfir sex mannanna. Mál Mai hefur vakið mikla alþjóðlega athygli, enda fátítt að konur í Pakistan þori að rísa upp gegn feðraveldinu sem þar ríkir. Öldungaráðið í þorpi fjölskyldunnar fyrirskipaði hópnauðgunina sem hefnd fyrir að þrettán ára bróðir Mai hafði sést með konu af æðri ættbálki. Mai ákvað að láta þetta ekki yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust og kærði fjórtán menn fyrir nauðgunina og skipulagningu hennar. Héraðsdómur dæmdi sex þeirra til dauða en sýknaði átta. Mennirnir áfrýjuðu dóminum til undirréttar í Punjab-héraði og þar komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að sönnunargögn væru ekki næg, sýknaði fimm menn í viðbót og breytti dómi þess sjötta í lífstíðarfangelsi. Þeim dómi hefur Mai áfrýjað til hæstaréttar Pakistans sem er æðsta dómstigið. Mannréttindasamtök hafa fylgst vel með máli Mai sem þykir varpa ljósi á stöðu kvenna í hinum dreifðu byggðum Pakistans þar sem feðraveldið ríkir enn utan opinbera dómskerfisins. Mai var boðið til Bandaríkjanna til að halda fyrirlestur en ríkisstjórnin bannaði henni að fara og tók af henni vegabréfið. Forseti Pakistans, Pervez Musharraf, hefur áhyggjur af því að mál Mai sýni Pakistan í slæmu ljósi. Hann hefur viljað kynna Pakistan sem framsækið, nútímalegt múslimaríki. Eftir mikil mótmæli bandarískra embættismanna og mannréttindasamtaka var ferðabannið afturkallað en Mai hefur ákveðið að bíða með öll ferðalög þar til úrskurður hæstaréttar liggur fyrir. Ekki er vitað hversu langan tíma réttarhöldin muni taka.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira