STASI-aðferðir í Svíþjóð 26. júní 2005 00:01
Sænsk skattayfirvöld hafa verið sökuð um að beita STASI-aðferðum við að koma höndum yfir þá sem stunda svarta vinnu. Þau ætla að reiða sig á uppljóstrara. Áætlað er að um 1000 milljarðar íslenskra króna séu borgaðar undir borðið á ári hverju í Svíþjóð. Miðað við skattprósentuna er ríkiskassinn að verða af hundruðum milljóna króna. Á þessu á nú að taka. Undafarin ár hafa skattayfirvöld fengið mörg hundruð ábendingar á ári um fólk sem sagt er stunda svarta vinnu. Skattayfirvöld hafa leitt þessar ábendingar hjá sér á þeim forsendum að þarna væri mest um að ræða fólk sem væri annað hvort öfundsjúkt eða þá að hefna sín. Klögumálin urðu þó smám saman svo mörg að ekki þótti annað hægt en að skoða þetta nánar. Niðurstaða þeirrar skoðunar var sú að svo mörg mál ættu við rök að styðjast að ekki yrði hjá því komist að grípa til aðgerða. Í þeim aðgerðum ætla skattayfirvöld einkum að reiða sig á uppljóstrara. Það hefur mælst illa fyrir hjá mörgum sem segja að þessi vinnubrögð minni á STASI, austurþýsku öryggislögregluna, sem náði árangri með því að láta nágranna, og jafnvel fjölskyldumeðlimi, njósna hver um annan. Skattayfirvöld í Svíþjóð hafna þessum rökum og segja að menn eigi að gjalda keisaranun það sem keisarans er. „Skattmann“ býst þó ekki við að aðgerðirnar geri meira en að rispa toppinn á ísjakanum.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ Sjá meira