Óvænt kosningaúrslit í Íran 25. júní 2005 00:01
Harðlínumenn ráða nú öllu í Íran eftir að hinn íhaldssami frambjóðandi, Ahmadinejad, vann óvæntan en afgerandi sigur í forsetakosningum. Þegar hann var skipaður borgarstjóri í Teheran 2003 var hann nánast óþekktur og í upphafi kosningabaráttunnar nú hafði það lítið breyst. Því var búist við sigri mótherjans, Rafsanjanis, en að munurinn yrði lítill. Niðurstaðan varð allt önnur: Ahmadinejad hlaut sextíu og tvö prósent atkvæða en Rafsanjani aðeins þrjátíu og sex prósent. Íhaldssamir harðlínumenn höfðu því betur en Ahmadinejad mun ekki síst hafa notið stuðnings undirstétta þar sem fátækt og atvinnuleysi eru algeng vandamál. Ahmadinejad hefur meðal annars heitið því að taka á spillingu og tryggja að olíuauður landsins komi öllum íbúum Írans til góða en ekki einungis yfirstéttum. Stuðningsmenn Rafsanjanis, sem hét umbótum, óttuðust íslamska harðlínustefnu og að frjálslyndar umbætur yrðu afturkallaðar. Í ljósi verka Ahmadinejads á borgastjórastóli kemur það ekki á óvart: þá sneri hann við stefnu forvera sinna, lokaði skyndibitastöðum og krafðist þess að karlar í starfi hjá borginni létu sér vaxa skegg og klæddust ermasíðum kuflum. Síðdegis sagðist hann vilja skapa þróaða og öfluga fyrirmyndarþjóð á grundvelli íslams. Hann hefur varið kjarnorkuáætlun Írana með krafti og segir bætt samskipti við Bandaríkin æskileg en er talinn ólíklegur til að stíga skref í þá átt.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ Sjá meira