Stjórnarandstaðan sigraði 20. júní 2005 00:01
Líbanska stjórnarandstaðan sigraði í þingkosningunum í landinu en fjórða og síðasta umferð þeirra fór fram í fyrradag. Þar með snarminnka ítök Sýrlendinga í landinu. Lokaumferðarinnar í líbönsku kosningunum hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu en þá var kosið í norðurhluta landsins. Eftir fyrsta hlutann 29. maí virtist allt stefna í auðveldan sigur andsýrlensku flokkanna en gott gengi Hizbollah í öðrum hlutanum og óvænt velgengni gamla byltingarleiðtogans Michel Aoun í þriðja hlutanum hleypti mikilli óvissu í spilið. Framan af kjördegi var kjörsókn nokkuð dræm en eftir ákall Saad Hariri, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, kom kippur í aðsóknina. Þegar yfir lauk höfðu 48 prósent kjósenda neytt atkvæðisréttar síns sem er talsverð aukning frá því í kosningunum 2000. Kosningabandalag Hariri þurfti 21 sæti af 28 til að tryggja sér meirihluta á líbanska þinginu en þegar þorri atkvæðanna hafði verið talinn virtist allt stefna í að bandalagið fengi öll sætin 28. Í gærmorgun viðurkenndi Suleiman Franjieh, leiðtogi bandamanna Sýrlendinga í Líbanon og fyrrverandi innanríkisráðherra, að þeir hefðu beðið lægri hlut. Mikil fagnaðarlæti gripu um sig í Trípólí, höfuðstaðar norðursins, og eins veifuðu margir fánum og þeyttu bílflautur í höfuðborginni Beirút. Allt útlit er fyrir að Saad Hariri myndi nýja ríkisstjórn og verði forsætisráðherra, rétt eins og Rafik faðir hans, sem ráðinn var af dögum fyrr á árinu. Hans bíða þó ærin verkefni, til dæmis að lagfæra bágborin efnahag þjóðarinnar, aðstoða Sameinuðu þjóðirnar við rannsókn á morðinu á föður hans og verða við kalli samtakanna um afvopnun skæruliðahópa, sérstaklega Hizbollah. Enn fremur mistókst kosningabandalagi hans að ná 2/3 hluta þingsætanna og getur því ekki gert neinar breytingar á stjórnarskránni. Það þýðir að ekki verður hróflað við Emile Lahoud forseta en hann er dyggur bandamaður Sýrlendinga en hann lét á síðasta ári lengja kjörtímabil sitt um tvö ár fyrir atbeina stjórnvalda í Damaskus. Lahoud mun eflaust reynast Hariri óþægur ljár í þúfu.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ Sjá meira