Blóðug átök í Belfast 18. júní 2005 00:01
Tugir manna slösuðust í blóðugum átökum í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Óttast er að þetta sé fyrirboði um það sem koma skal í sumar. Þótt ekki hafi enn gróið um heilt með kaþólikkum og mótmælendum á Norður-Írlandi hefur verið fremur rólegt þar undanfarin misseri. Í gær urðu hins vegar heiftarleg viðbrögð við skrúðgöngu mótmælenda og er óttast að það setji tóninn fyrir þær göngur sem eftir er að fara á þessu sumri. Séra Ian Paisley og aðrir harðlínumenn meðal leiðtoga mótmælenda hafa undanfarið alið á úlfúð milli þjóðarbrotanna. Óraníuregla mótmælenda fer í þessar göngur til þess að minnast sögulegra atburða sem oftar en ekki tengjast sigrum þeirra yfir kaþólikkum í einhverri orrustunni fyrr á öldum. Þær eru því bein ögrun við kaþólska íbúa landsins, enda hafa mótmælendur gert sér far um að fara inn í þeirra borgarhverfi í skúðgöngum sínum. Göngurnar hafa kostað fjölmörg mannslíf á undanförnum áratugum en eftir að vopnahlé var samið sem kennt er við föstudaginn langa hefur ekki komið til stórtíðinda, fyrr en í gær. Átján lögreglumenn slösuðust í þeim átökum, sem og fjöldamargir mótmælendur, en kaþólikkar létu flöskum og grjóti rigna yfir þá. Lögreglusveitir voru fjölmennar og vatnsbílum óspart beitt til þess að reyna að kæla blóðið í deilendum.
Erlent Fréttir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira