Sláum því á frest 17. júní 2005 00:01 „
Sláum því á frest“ er helsta niðurstaða leiðtogafundar Evrópusambandsþjóðanna um sameiginlega stjórnarskrá sem lýkur í Brussel í kvöld. Þá var hart deilt um frjárframlög í sameiginlega sjóði. Á þessum tveggja daga leiðtogafundi var sæst á að fresta staðfestingarferli stjórnarskársáttmálans en upphaflega var gert ráð fyrir að allar aðildarþjóðirnar 25 myndu samþykkja hann fyrir nóvember á næsta ári. Í raun var fátt annað í stöðunni eftir að almenningur í Frakklandi og Hollandi kolfelldi hann í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir um hálfum mánuði. Leiðtogarnir komust að þeirri niðurstöðu að þeim hefði fram að þessu gengið illa að gera hann ákjósanlegan í augum almennings og nú á að bæta þar úr með upplýsinga- og áróðursherferðum Mikið liggur við, enda eru áætlanir um frekari samvinnu og samruna sambandsþjóðanna í uppnámi, sem og innganga Tyrklands og þjóðanna á Balkanskaga í sambandið. Sæst var á að leiðtogarnir fengju tíma til íhugunar og myndu setja ný tímamörk á staðfestingu sáttmálans á fundi sínum í júní á næsta ári. Í kjölfarið hefur hver forsætisráðherrann á fætur öðrum komið fram og afboðað fyrirhugaðar þjóðaratkvæðagreiðslur um sáttmálann. Danmörk, Írland, Portúgal og Lúxemborg eru í þeim hópi. Á fundinum komu reyndar fram frumlegar hugmyndir, t.a.m. frá utanríkisráðherra Portúgal sem lagði til að þær þrettán þjóðir sem enn eiga eftir að kjósa um viðhorf sitt til sáttmálans myndu allar ganga til kosninga á sama tíma. Í dag, á seinni degi fundarins, lágu fjármálaráðherrar Evrópusambandsþjóðanna yfir fjárlögum sambandsins fyrir árin 2007 til 2013 og þar mættust stálin stinn. Segja má að flestar þjóðanna vilji greiða minna í sameiginlega sjóði án þess að það komi niður á styrkveitingum til þeirra. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, harðneitar til dæmis að gefa eftir afslátt sem Bretar hafa notið af greiðslum til sambandsins, þrátt fyrir mikinn þrýsting, nema dregið verði úr landbúnaðarstyrkjum til Frakka. Það segir Jacques Chirac Frakklandsforseti hins vegar ekki koma til greina svo fátt bendir til að samkomulag um sameiginleg fjármál náist í bráð. Að minnsta kosti lagði Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, það til að umræðu um fjárlögin yrði frestað um ár, líkt og frekari ákvarðanatöku um staðfestingu stjórnarskrársáttmálann.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira