Erlent

Danir styðja afnám hvalveiðibanns

Eina leiðin til að vernda hvali er að afnema hið algera bann við veiðum í atvinnuskyni sem verið hefur í gildi frá því árið 1986. Þetta hefur danska blaðið Politiken eftir Per Stig Møller, utanríkisráðherra Danmerkur. Þar með liggur fyrir að Danir muni styðja tillöguna um afnám veiðibannsins er hún verður borin undir atkvæði á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem hefst í Suður-Kóreu á mánudaginn. Møller skýrði frá þessari afstöðu Danmerkurstjórnar á fundi með umhverfisnefnd danska þingsins. Að sögn ráðherrans er nauðsynlegt að afnema bannið til að tryggja að Alþjóðahvalveiðiráðið haldist starfhæft. "Ef við höldum fast í bannið mun ráðið klofna í sundur," sagði Møller. Að hans sögn hafa fulltrúar Dana á ársfundinum fengið þau fyrirmæli að beita sér fyrir því að ráðið ákveði árlegan veiðikvóta sem það muni síðan hafa eftirlit með. Kvótar til svonefndra vísindaveiða verði teknir með í nýja kvótann sem hverju hvalveiðilandi verði úthlutað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×