Erlent

Kasparov gagnrýnir lögreglu

Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur gagnrýnt rússnesku lögregluna harðlega fyrir að hafa ráðist að mótmælendum með ofbeldi við réttarhöldin yfir Mikhail Khodorkovsky. Kasparov er hættur sem atvinnumaður í skák og einbeitir sér nú að stjórnmálum en hann er eindreginn andstæðingur Vladimírs Pútín og ríkisstjórnar hans. Hann hefur krafist þess að þeir lögreglumenn sem þarna voru að verki verði sóttir til saka. Khodorkovsky-réttarhöldin eru af mörgum Rússum talin vera fyrst og fremst pólitískar ofsóknir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×